Að verða slökkviliðsmaður

Brunavarnir Árnessýslu auglýsa reglulega eftir slökkviliðsmönnum, af öllum kynjum, til starfa á starfsstöðvum sínum. Oft er um er að ræða hlutastörf í útkallsliði BÁ. Búseta í Árnessýslu er skilyrði.
Hæfniskröfur
- Sveinspróf eða stúdentspróf er kostur
- Ökuréttindi til að stjórna vörubifreið eru æskileg en ekki skilyrði
- Færni í samskiptum, frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
- Hafa góða líkamsburði og gott andlegt-/ líkamlegt heilbrigði
- Hafa góða sjón og heyrn, rétt litaskyn og ekki þjást af lofthræðslu eða með innilokunarkennd
- Almenn reglusemi og háttvísi
Umsókn þarf að fylgja:
- Ljósrit af báðum hliðum ökuskírteinis
- Prófskírteini sem sýnir menntun
- Sakavottorð í pappírsformi (hámark 3 mánaða) – má nálgast á island.is
- Ökuferilsskrá í pappírsformi (hámark 3mánaða)
- Læknisvottorð í pappírsformi frá heimilislækni þar sem kemur fram almennt heilbrigði (hámark 3 mánaða)
- Nýleg og skýr passamynd
- Ferliskrá
Umsóknir
- Brunavarnir Árnessýsla taka á móti hópum og sjá um þjálfun á nýliðum. Tekið er við umsóknum í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 á Selfossi skv. nánari upplýsingum sem koma fram á auglýsingu
- Inntökupróf felst í könnun á lofthræðslu og innilokunarkennd, starfstengdum
verkefnum, þrek– og styrktarprófi, læknisskoðun og viðtali - Kynningarfundur eru haldnir fyrir áhugasama verður í Björgunarmiðstöðinni
- Ný störf eru auglýst sérstaklega, en hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á á ba@babubabu.is