Almennar leiðbeiningar

Forvarnir eru mikilvægur þáttur í því að takast á við vá. Upplýsingar og leiðbeiningar um forvarnir og viðbrögð við hvers kyns vá er að finna hjá almannavarnir.is

Á heimilum og vinnustöðum ætti fólk að ræða saman um hugsanlegar hættur, ræða tryggingamál, skoða útgönguleiðir hússins og kanna staðsetningu öryggisbúnaðar. Nám í skyndihjálp er hagnýtt og getur bjargað mannslífum. Rauði kross Íslands veitir upplýsingar um námskeið fyrir almenning og fyrirtæki.

Mikilvægt er að kunna að meðhöndla öryggisbúnaðinn. Meðal öryggisbúnaðar á heimilum og vinnustöðum ætti að vera:

Slökkvitæki
Reykskynjarar
Brunastigar eða brunakaðlar til undankomu af efri hæðum húsa
Verkfæri, svo sem hamar, sög, töng, rörtöng, skrúfjárn, skófla, öxi og kúbein
Heppilegt er að koma eftirtöldum búnaði fyrir í viðlagakassa sem allir þurfa að vita hvar geymdur er:

  • Sjúkrakassa
  • Vasaljósi
  • Útvarpi með rafhlöðum
  • Bæklingi um skyndihjálp
  • Lista yfir mikilvæg símanúmer (nákominna, þjónustuaðila o.fl.)
  • Neyðaráætlun fjölskyldunnar/vinnustaðarins
  • Ræðið og æfið viðbrögð við hættuástandi og látið börn taka fullan þátt í þeim.

 

Slökkvi- og björgunarstörf

Vertu með

Eldvarnaeftirlit

  • Kynning (efni í smíðum)
  • Tilgangur (efni í smíðum)
  • Lög og reglugerðir
  • Skjalfesting öryggis (efni í smíðum)

Eftirlitsáætlun

Þjónusta

Námskeið

  • Slökkvitæki (efni í smíðum)
  • Rýmingar (efni í smíðum)

Fróðleikur

Heimsóknir