Björnis Brunabangsi

Björnis Brunabangsi
Björnis brunabangsi, vinsæll forvarnarfélagi frá Noregi, er komin til Íslands. Hann hefur notið gríðarlegra vinsælda meðal allra aldurshópa í heimalandi sínu og íslensk börn þekkja hann nú þegar sem Bjössa brunabangsa úr vinsælum sjónvarpsþáttum á RÚV. Björnis mun styðja slökkvilið um allt land við fræðslu og forvarnir, sérstaklega gagnvart yngstu kynslóðinni. Verkefnið er hluti af metnaðarfullri áætlun um að efla brunavarnir á heimilum landsmanna.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mun vinna með slökkviliðunum og öðrum hagsmunaaðilum að innleiðingu verkefnisins í samræmi við hlutverk HMS á sviði brunavarna.
Nánari upplýsingar verða settar hér þegar verkefni í Árnessýslu hafa verið skipulögð.

