Flóttaáætlun
Flóttaáætlun
Þegar eldur kemur upp þar sem fólk sefur geta hiti og reykur valdið dauða nema þú hafir áætlun um hvernig bregðast á við, til dæmis um flótta úr svefnherbergi á örfáum sekúndum.
Áætlunin krefst
- Reykskynjara.
- Flóttaáætlunar sem teiknuð er á blað.
- Fjölskylduumræðna.
- Æfinga.
- Tryggðu að flóttaleiðir séu ávallt greiðfærar.
Brunaæfing á heimilinu
- Allir eiga að vera í sínu herbergi með hurðir lokaðar.
- Einn á heimilinu gefur brunamerki með því að kalla ELDUR! ELDUR!
- Hver og einn athugi herbergisdyr sínar.
- Látið sem dyrnar séu heitar. Notið þá hina flóttaleiðina.
- Allir mæti á fyrirfram ákveðinn stað utandyra, einn látinn “kalla til” slökkviliðið.
Ræðið eftirfarandi við fjölskylduna
- Sofið með svefnherbergisdyrnar lokaðar. Það heldur aftur af hinum eitraða reyk.
- Reykskynjarinn mun væla og vekja fjölskylduna.
- Athugið dyrnar. Ef þær eru heitar notið þá hina flóttaleiðina. Séu þær kaldar, verið viðbúin að loka aftur ef reykur eða hiti sækir inn.
- Skríðið í reykfylltu herbergi, verið fljót út.
- Farið á fyrirfram valinn mótsstað svo þið getið athugað hvort öll fjölskyldan sé óhult.
- Farið ekki aftur inn í eld eða reyk. Verið viss um að aðrir fari heldur ekki inn. Fjöldi fólks hefur látist við að reyna slíkt.
- Kallið á slökkviliðið úr næsta síma.