Gróðureldar
Forvarnir og fyrstu viðbrögð
Leiðbeiningar
Fyrstu viðbrögð »
Flóttaáætlun »
Minnka eldsmat og útbreiðslu »
Meðferð elds á grónu svæði »
Skipulag skóga »
Útbúnaður til eldvarna í gróðri »
Sumarhúsaeigendur »
Lágmarksútbúnaður »
Fróðleikur
Kortavefsjá »
Aðkoma viðbragðsaðila »
Greinargerð stýrihóps »
Almenn fræðsla »
Myndbönd fræðsla »
Gróðureldar
Gróðureldar geta verið illviðráðanlegir ef eldur berst í þurran gróður. Á undanförnum áratugum hefur trjám verið plantað í miklum mæli á Íslandi. Ógrisjaður, þéttur skógur getur verið illfær vegna þess að greinar hans eru samfléttaðar frá skógarbotni og upp úr. Slíkur skógur er hættulegastur með tilliti til gróðurelda. Veðurfar hefur mikil áhrif á hættu á gróðurbruna og miklir gróðurbrunar verða yfirleitt í langvarandi þurrkum og hvassviðri. Eldur og reykur getur stefnt lífi fólks í hættu og valdið verulegu eignatjóni. Rétt viðbrögð og forvarnir geta þá skipt sköpum og er tilgangur okkar að kynna helstu atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga varðandi eld í gróðri.
PDF-Hús og mannvirkjastofnun. Leiðbeiningar um brunavarnir í frístundabyggðum 1.0