23.03.2020. Við erum að leita að þér

Útbreiðsla Covid-19 veirunnar getur orðið til þess að valda erfiðleikum við að veita þjónustu og skapað álag á vissum starfsstöðvum þar sem sinnt er þjónustu við viðkvæmustu hópana, t.d. aldraða, fatlaða og börn. Á það ekki einungis við um sérhæfð störf lækna, hjúkrunarfólkseða annarra sérfræðinga, einnig getur reynt á að það skorti fólk til að starfa í eldhúsum og mötuneytum, við ræstingar og fleira.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands og sveitarfélögin á Suðurlandi biðja einstaklinga sem búsettir eru á Suðurlandi og geta tekið að sér margvísleg störf, víðsvegar á svæðinu, á næstu tveimur mánuðum, að skrá sig til starfa. Sem dæmi má nefna störf á hjúkrunarheimilum, heimilum fyrir fatlað fólk, í dagdvölum og skammtímavistunum. Rafrænt skráningarform bakvarðarsveitar í velferðarþjónustu má finna á www.stjornarradid.is.

Um getur verið að ræða fullt starf, hlutastarf eða tímavinnu. Ráðningarsamningur verður á milli einstaklingsins og viðkomandi stofnunar eða sveitarfélags, eftir því sem við á hverju sinni. Laun taka mið af kjarasamningum viðeigandi stéttarfélags og þess sveitarfélags eða stofnunar sem um ræðir hverju sinni. Nánari upplýsingar er að finna með skráningarforminu.

Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU

Formenn almannavarnanefnda á Suðurlandi:

Ágúst Sigurðsson

Ásta Stefánsdóttir

Matthildur Ásmundardóttir

Forsíða

Myndir

Um okkur

Gjaldskrá

Lög og reglugerðir

Fundargerðir

Bílaflotinn

Viðbrögð við jarðskjálfta

Almennar forvarnir

Eldvarnir í fjölbýli/sérbýli

Viðbrögð við vá

Gróðureldar

Skoðanaáætlun

Slökkvitækjaþjónusta

Nám slökkviliðsmanna

Nám hlutastarfandi

Nám eldvarnaeftirlit

Löggilding

Kennslugögn v/fornáms

Umsókn

Starfsmannafélag

Brunavarnir Árnessýslu
Árvegi 1. 800 Selfoss
Sími 4-800-900
ba@babubabu.is

Slökkvi- og björgunarstörf

Vertu með

  • Atvinnuumsóknir (form í smíðum)
  • Laus störf
  • Nám (efni í smíðum)

Eldvarnaeftirlit

  • Kynning (efni í smíðum)
  • Tilgangur (efni í smíðum)
  • Lög og reglugerðir
  • Skjalfesting öryggis (efni í smíðum)

Eftirlitsáætlun

 

Þjónusta

Námskeið

  • Slökkvitæki (efni í smíðum)
  • Rýmingar (efni í smíðum)

Fróðleikur

Fræðsla í skólum