Viðbrögð við vá
Almennar leiðbeiningar
Forvarnir eru mikilvægur þáttur í því að takast á við vá. Upplýsingar og leiðbeiningar um forvarnir og viðbrögð við hvers kyns vá er að finna hjá almannavarnir.is
Á heimilum og vinnustöðum ætti fólk að ræða saman um hugsanlegar hættur, ræða tryggingamál, skoða útgönguleiðir hússins og kanna staðsetningu öryggisbúnaðar. Nám í skyndihjálp er hagnýtt og getur bjargað mannslífum. Rauði kross Íslands veitir upplýsingar um námskeið fyrir almenning og fyrirtæki.
Mikilvægt er að kunna að meðhöndla öryggisbúnaðinn. Meðal öryggisbúnaðar á heimilum og vinnustöðum ætti að vera:
Slökkvitæki
Reykskynjarar
Brunastigar eða brunakaðlar til undankomu af efri hæðum húsa
Verkfæri, svo sem hamar, sög, töng, rörtöng, skrúfjárn, skófla, öxi og kúbein
Heppilegt er að koma eftirtöldum búnaði fyrir í viðlagakassa sem allir þurfa að vita hvar geymdur er:
- Sjúkrakassa
- Vasaljósi
- Útvarpi með rafhlöðum
- Bæklingi um skyndihjálp
- Lista yfir mikilvæg símanúmer (nákominna, þjónustuaðila o.fl.)
- Neyðaráætlun fjölskyldunnar/vinnustaðarins
- Ræðið og æfið viðbrögð við hættuástandi og látið börn taka fullan þátt í þeim.