Viltu starfa í slökkviliði

Brunavarnir Árnessýslu

Starfsauglýsing

Starfsauglýsing

Viltu verða slökkviliðsmaður?

Brunavarnir Árnessýslu auglýsa eftir slökkviliðsmönnum, af öllum kynjum, til starfa á starfsstöðvum sínum á Selfossi, Laugarvatni, Flúðum, Reykholti, Árnesi, Hveragerði , Þorlákshöfn og á nýrrri stöð sem kemur á Borg í Grímsnesi.

Um er að ræða hlutastörf í útkallsliði BÁ – búseta í Árnessýslu er skilyrði.

  • Sveinspróf eða stúdentspróf er kostur
  • Ökuréttindi til að stjórna vörubifreið eru æskileg en ekki skilyrði
  • Færni í samskiptum, frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
  • Hafa góða líkamsburði og gott andlegt-/ líkamlegt heilbrigði
  • Hafa góða sjón og heyrn, rétt litaskyn og ekki þjást af lofthræðslu eða með innilokunarkennd
  • Almenn reglusemi og háttvísi

Hæfniskröfur

  • Sveinspróf eða stúdentspróf er kostur
  • Ökuréttindi til að stjórna vörubifreið eru æskileg en ekki skilyrði
  • Færni í samskiptum, frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
  • Hafa góða líkamsburði og gott andlegt-/ líkamlegt heilbrigði
  • Hafa góða sjón og heyrn, rétt litaskyn og ekki þjást af lofthræðslu eða með innilokunarkennd
  • Almenn reglusemi og háttvísi

Umsókn þarf að fylgja:

  • Ljósrit af báðum hliðum ökuskírteinis
  • Prófskírteini sem sýnir menntun
  • Sakavottorð í pappírsformi (hámark 3 mánaða) – má nálgast á island.is
  • Ökuferilsskrá í pappírsformi (hámark 3mánaða)
  • Læknisvottorð í pappírsformi frá heimilislækni þar sem kemur fram almennt heilbrigði (hámark 3 mánaða)
  • Nýleg og skýr passamynd
  • Ferliskrá

Umsóknir

  • Tekið er við umsóknum í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 á Selfossi í umslagi merkt „Slökkviliðsmenn 2025“
  • Inntökupróf felst í könnun á lofthræðslu og innilokunarkennd, starfstengdum
    verkefnum, þrek– og styrktarprófi, læknisskoðun og viðtali
  • Kynningarfundur fyrir áhugasama verður í Björgunarmiðstöðinni á Selfossi
  • Miðvikudaginn 24. september kl. 20.00.
  • Umsóknarfrestur er til og með10. október 2025

Nánari upplýsingar veitir Lárus Kristinn Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri, larus@babubabu.is eða í síma 480-0900

Ný störf eru auglýst sérstaklega, en hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á á ba@babubabu.is